Glansandi hellur á augabragði

Með tímanum safna hellur á sig mosa, óhreinindum og slykju sem er nauðsinlegt að hreinsa til að halda svæðinu hreinu og fínu. Með vandaðri hreinsun koma upprunalegir litir aftur í ljós og hellurnar verða eins og nýjar. Við notum örugga aðferð sem losar um mosann og skilar fallegu og hreinu yfirborði sem lyftir heildarmyndinni.

Hvernig hreinsum við hellur

Skref 1

Fjarlægjum stærri óhreinindi

Við fjarlægjum stærri óhreinindi eins og lauf og greinar

Skref 2

Berum á hreinsiefni

Hreinsiefni er borið á svæðið til að brjóta niður mosa og óhreinindi

Skref 3

Háþrýstiþvottur

Hellurnar eru háþrýstiþvegnar og allt hreinsað af þeim (við tökum óhreinindin með okkur)

Skref 4

Fjarlægjum óhreinindi

Svæðið er skolað vel niður til að tryggja að ekkert sitji eftir

Skref 5

Berum á verndarefni

Sérstakt efni er borið á hellurnar sem ver þær og dregur úr líkum á að gróður og óhreinindi nái fótfestu aftur

Skref 6

Fyllum í fúgur

Að lokum fyllum við fúgurnar með sérstökum sandi sem kemur í veg fyrir að gróður spretti upp á milli hellanna

Fyrir og eftir myndir

Algengar spurningar

Við tökum allt saman með okkur og förgum því á réttan hátt hjá Sorpu. Þú þarft því ekki að hafa áhyggjur af því að sitja uppi með afganga

Þú getur sent inn fyrirspurn í gegnum „Hafðu samband“ á vefsíðunni, sent tölvupóst á hreinsum@hreinsum.is eða hringt beint í okkur í síma 661-4737

Flest verkefni klárast samdægurs, en stærð svæðisins og aðstæður geta haft áhrif á tímalengd. 

Já, við bjóðum upp á reglulegt viðhald svo svæðið haldist hreint og fínt til lengri tíma

Já, við hreinsum palla, þök, veggi og margt fleira. 

Scroll to Top