Undirbúningur fyrir málun
Áður en byrjað er að mála er mikilvægt að yfirborðið sé hreint. Við fjarlægjum alla lausa og flagnaða málningu með háþrýstiþvotti og hreinsum burt óhreinindi, ryk og fitu. Þannig tryggjum við að nýja málningin festist beint við yfirborðið sjálft, sem gefur fallegra útlit og mun lengri endingu.
Hvernig undirbúum við veggi fyrir málun?
Skref 1
Undirbúningur og öryggi
Ef um er að ræða háar byggingar eða veggi setjum við upp vinnupalla til að tryggja örugga og vandaða framkvæmd
Skref 2
Háþrýstiþvottur
Allt svæðið er hreinsað með háþrýstiþvotti til að fjarlægja flagnaða málingu og óhreinindi sem sitja á yfirborðinu
Skref 3
Upphirða málningarbrotanna
Við söfnum saman mestum hluta af málningarbrotum og öðru rusli sem fellur til við þvottinn
Algengar spurningar
Já, þetta er mjög mikilvægur hluti áður en málað er. Ef þú málar beint yfir gamla málningu, óhreinindi eða fitu, mun nýja málningin flagna af innan nokkurra vikna og þá hefur þú sóað bæði tíma og peningum.
Háþrýstiþvotturinn fjarlægir lausa og flagnaða málningu sem annars myndi losna undir nýja laginu. Hann hreinsar líka ryk og óhreinindi, þannig að nýja málningin festist beint við yfirborðið.
Þú getur sent inn fyrirspurn í gegnum „Hafðu samband“ á vefsíðunni, sent tölvupóst á hreinsum@hreinsum.is eða hringt beint í okkur í síma 661-4737
Við söfnum saman mestum hluta af málningarbrotunum og tryggjum að sem minnst sé eftir. Það er ekki alltaf hægt að fjarlægja 100%, en við skiljum svæðið eins snyrtilegt eftir og hægt er.
Nei, við getum undirbúið hvaða yfirborð sem er fyrir málun — allt frá litlum veggjum upp í stórar byggingar. Ef þörf er á notum við vinnupalla til að komast að hærri flötum.
Já, með réttum undirbúningi festist nýja málningin mun betur og endist margfalt lengur. Það sparar þér bæði kostnað og vinnu til framtíðar.