Þak án mosa og óhreininda

Með tímanum safnast mosi, óhreinindi og gróður á þök sem getur skemmt yfirborðið og dregið úr heildarútliti hússins. Með réttri hreinsun koma upprunalegir litir þaksins aftur fram og húsið verður hreint og fínt. Við notum öruggar aðferðir sem losa um mosann og hreinsa yfirborðið án þess að valda skemmdum, þannig að þakið verður  fallegt og endist í langan tíma.

Hvernig hreinsum við þök

Skref 1

Fjarlægjum stærri óhreinindi

Við fjarlægjum stærri óhreinindi eins og lauf og greinar

Skref 2

Berum á hreinsiefni

Hreinsiefni er borið á þakiðtil að brjóta niður mosa, slykju og önnur óhreinindi

Skref 3

Háþrýstiþvottur

Þakið er háþrýstiþvegið til að fjarlægja mosann og allt sem situr eftir á yfirborðinu

Skref 4

Fjarlægjum óhreinindi

Þakið er skolað vel til að tryggja að engin óhreinindi séu skilinn efir

Skref 5

Berum á verndarefni

Að lokum er borið á varnar efni sem hjálpar til við að halda þakinu hreinu og fallegu í lengri tíma

Algengar spurningar

Nei, hún gerir það ekki. Við notum öruggt hreinsiefni sem brýtur niður mosa, slykju og óhreinindi. Þannig getum við notað minni þrýsting við þvottinn, sem verndar þakið gegn skemmdum.

Fyrst og fremst lítur húsið mun betur út — sérstaklega ef þú ert að selja eða vilt einfaldlega eiga fallegt heimili. Í öðru lagi lengir hreinsun líftíma þaksins og kemur í veg fyrir skemmdir.

Þú getur sent inn fyrirspurn í gegnum „Hafðu samband“ á vefsíðunni, sent tölvupóst á hreinsum@hreinsum.is eða hringt beint í okkur í síma 661-4737

Flest þök þurfa hreinsun á 2–4 ára fresti, eftir staðsetningu, nálægð við tré og hversu hratt mosi vex.

Já — hreint þak bætir heildarútlit hússins, sem getur skipt miklu máli þegar húsið er selt. Það sýnir líka að þakið hefur verið vel við haldið.

Já, hún hægir á vexti mosa og óhreininda, þannig að þakið helst hreinna lengur og þú þarft sjaldnar að láta hreinsa það.

Scroll to Top